11.11.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Ivan De La Pena til Espanyol. (Staðfest)

De La Pena er kominn aftur til Espanyol.


De La Pena er kominn aftur til Espanyol.

Miðjumaðurinn Ivan De La Pena hefur skrifað undir samning við Espanyol til loka leiktíðarinnar. De La Pena sem er 27 ára hætti hjá Espanyol í júní og reyndi meðal annars fyrir sér hjá Glasgow Celtic en hann fann ekkert lið og er því aftur kominn til Espanyol. Kappinn byrjaði ferilinn hjá Barcelona 1995 en 1998 fór hann til Lazio. Þaðan var hann lánaður til Olympique Marseille áður en að hann fór til Espanyol fyrir seinasta tímabil.
