Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 11. nóvember 2020 20:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Noregur: Ingibjörg og Hólmfríður í undanúrslit
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vålerenga komst í kvöld í undanúrslit norsku bikarkeppninnar með sigri á Stabæk. Leikurinn endaði með 2-1 sigri Vålerenga og voru öll mörkin skoruð í fyrri hálfleik. Ingibjörg Sigurðardóttir er leikmaður Vålerenga og var í byrjunarliði liðsins í kvöld.

Mark Stabæk kom á 35. mínútu þegar Justine Kvaleng Kjelland átti skot sem fór af Ingibjörgu og þaðan í netið. Áður hafði Ajara Nchout komið Vålerenga yfir og á 41. mínútu skoraði Sigrid Helen Hansen sigurmarkið.

Í gær komst Avaldsnes áfram með 1-0 sigri á Arna-Björnar. Hólmfríður Magnúsdóttir kom inn af bekknum á 55. mínútu og lék síðustu 35 mínúturnar.

Sandviken og LSK eru hin tvö liðin sem komust í undanúrslit.


Athugasemdir
banner
banner