12.01.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Zavagno til Ancona (Staðfest)
Argentínski varnarmaðurinn Luciano Zavagno hefur yfirgefið Derby fyrir lið Ancona sem spilar í Seríu-A á Ítalíu. Gengið var frá félagaskiptum þessa 26 ára leikmanns í dag. Hann var einn af launahæstu mönnum Derby og því mun George Burley framkvæmdarstjóri liðsins fá aukið fé til leikmannakaupa. Zavagno kom til Englands frá Troyes í október 2001 og spilaði 54 leiki fyrir Derby, í deild og bikar. Hann skoraði þrjú mörk í þessum leikjum. Í fréttatilkynningu frá Derby óskar félagið Zavagno velfarnaðar í framtíðinni.
