Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 12. janúar 2023 00:25
Brynjar Ingi Erluson
Heimsmeistarinn Messi skoraði í sigri PSG
Lionel Messi fagnar marki sínu
Lionel Messi fagnar marki sínu
Mynd: EPA
Argentínski snillingurin Lionel Messi skoraði seinna mark Paris Saint-Germain í 2-0 sigri liðsins á botnliði Angers í frönsku deildinni í kvöld, en þetta var fyrsti leikur hans eftir heimsmeistaramótið.

Messi varð heimsmeistari með Argentínu rétt fyrir jól en hann hélt strax til heimalandsins og fagnaði sigrinum þar áður en hann snéri aftur til Frakklands í síðustu viku.

Hann var í byrjunarliði PSG gegn Angers í kvöld og kom að báðum mörkum liðsins.

Messi lagði boltann út á Nordi Mukiele í fyrra markinu áður en franski varnarmaðurinn kom boltanum á Hugo Ekitike sem skoraði.

Argentínumaðurinn gerði svo annað markið eftir sendingu frá Mukiele en hann lagði boltann í vinstra hornið af stuttu færi.

Messi er með 13 mörk og 14 stoðsendingar á tímabilinu með PSG í aðeins 20 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner