Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. febrúar 2021 09:30
Victor Pálsson
Chelsea og Inter gætu skipt á leikmönnum
Mynd: Getty Images
Það er talað um að Chelsea gæti reynt að fá Christian Eriksen í sínar raðir frá Inter Milan næsta sumar.

Samkvæmt Calciomercato þá hefur Chelsea áhuga á Eriksen sem gerði garðinn frægan með Tottenham.

Eriksen samdi við Inter í janúar í fyrra en hann hefur lítið sýnt á Ítalíu og vill félagið losna við hann af launaskrá.

Chelsea ku vera að skoða það að senda Jorginho til Ítalíu á móti en hann er fyrrum leikmaður Napoli.

Félögin gætu því reynt að skipta á þessum leikmönnum næsta sumar en Jorginho er sagður opinn fyrir því að snúa aftur heim.
Athugasemdir
banner
banner