12.03.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Guðni Rúnar í Fylki (Staðfest)
Guðni Rúnar Helgason gerði í gær samkomulag um þriggja ára samning við Fylki. Guðni er 27 ára gamall og hóf ferilinn með Völsungi á Húsavík en hefur einnig verið hjá Sunderland, KR, ÍBV, Hönefoss og nú síðast hjá Val. Hann hafði verið í viðræðum við KR í haust en ekkert varð úr því að hann færi þangað. Ljóst er að koma Guðna verður mikill styrkur fyrir Fylki en félagið er þó ekki enn hætt á leikmannamarkaðnum og ætlar að reyna að fá til sín að minnsta kosti einn leikmann í viðbót fyrir átökin í sumar.
