12.03.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Palermo til Alavés (Staðfest)

Argentíski sóknarmaðurinn Martin Palermo hefur gengið til liðs við spænska 2.deildarliðið Deportivo Alavés eftir að hafa fengið sig lausan undan samningi hjá Real Betis. Palermo sem að er þrítugur og fyrrum landsliðsmaður Argentínu hefur ekki náð sér á strik síðan að hann kom til Real Betis síðastliðið sumar frá Villareal og að lokum fékk hann sig lausan frá Betis í dag.
"Ég er hér til að sýna það að ég er góður leikmaður, eitthvað sem að ég gat ekki gert hjá Betis. Ég vil hjálpa Alavés til að komast aftur upp í efstu deild. sagði Palermo sem að komst í hemisfréttirnar á sínum tíma þegar að hann misnotaði þrjár vítaspyrnur í landsleik með Argentínu.
Hann á að fylla skarð sóknarmannsins Ivan Alonso hjá Alavés en hann verður frá út leiktímabilið. Liðið er í sjötta sæti sem stendur í 2.deildinni eftir að hafa fallið úr La Liga og nú er liðið sex stigum á eftir Levante sem að er í þriðja sætinu sem að er seinasta sætið sem kemu þáttökurétt í La Liga að ári.