Heimir Guðjóns: Óli Jóh var geggjaður í þessari auglýsingu
Auglýsing

Heimir Guðjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Jóhannesson fór með stórleik í auglýsingunni fyrir Bestu deildina

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, líst ágætlega á spá þjálfara og fyrirliða Bestu Deildarinnar en Val er spáð 3. sætinu.
Valur hafnaði í 5. sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðasta tímabili, eftir að hafa verið í titilbaráttu megnið af tímabilinu, en markmið liðsins er auðvitað að gera betur.
„Spá er bara spá. Mér líst ágætlega á þetta og ekkert óeðlilegt að liðin sem voru í tveimur efstu sætunum í fyrra sé spáð tveimur efstu sætunum. Bæði með mjög öfluga leikmannahópa en auðvitað viljum við stríða þessum liðum og gera betur enn í fyrra," sagði Heimir við Fótbolta.net.
Ný auglýsing fyrir Bestu deildina var kynnt á kynningarfundi deildarinnar í dag og var Heimir nokkuð sáttur með hana en hann fór með hlutverk í henni líkt og aðrir þjálfarar og leikmenn úr deildinni.
„Auglýsingin var helvíti góð og sérstaklega fannst mér Óli Jóh geggjaður í þessari auglýsingu."
Það er lítið um meiðsli hjá Völsurum fyrir fyrstu umferð en Orri Sigurður Ómarsson er eina spurningamerkið eftir að hann meiddist gegn KA á dögunum.
„Staðan í hópnum er góð. Reyndar fékk Orri eitthhvern slink á hnéð í leiknum á móti KA á sunnudaginn. Hann fer í myndatöku í dag held ég og við vonum það besta en fyrir utan það eru allir heilir."
„Undirbúningstímabilið er oft þannig að það er upp og niður, misjafnar áherslur á hverjum tímum. Við höfum spilað góða leiki og ekki svo góða leiki og það er ósköp eðlilegt. Undirbúningurinn okkar er miðaður við að við verðum klárir á þriðjudag.