Fotbolti.net
04.07.26 - 17:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: ÍBV vann tíu leikmenn Vals

Besta deildin: ÍBV vann tíu leikmenn Vals
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV 1 - 0 Valur
1-0 Alex Freyr Hilmarsson ('58 )
Rautt spjald: Hólmar Örn Eyjólfsson, Valur ('65)
Lestu um leikinn
Valur heimsótti ÍBV í Bestu deildinni í dag. Chris Brazell stýrði Val í fyrsta sinn eftir að Hermann Hreiðarsson var látinn taka pokann sinn. Liðið heimsótti heita Eyjamenn sem voru taplausir í fimm leikjum í röð fyrir leik dagsins.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð rólegur. Eyjamenn náðu forystunni eftir tæplega klukkutíma leik.

Bjarki Björn Gunnarsson átti fyrirgjöf á Alex Frey Hilmarsson sem stóð inn í markteignum og skoraði af öryggi.

Stuttu síðar bættist grátt ofan á svart hjá Valsmönnum þar sem fyrirliðinn Hólmar Örn Eyjólfsson fékk að líta rauða spjaldið eftir viðskipti við Alex Frey.

Omar Sowe kom inn á af krafti. Hann átti sendingu á Bjarka Björn en skot hans framhjá. Sowe komst í færi stuttu síðar en Frederik Schram varði frábærlega frá honum.

Tryggvi Hrafn Haraldsson fékk dauðafæri fyrir Valsmenn en skotið arfaslakt beint á Ara I Haraldstovu.

Nær komust þeir ekki og frábær sigur ÍBV staðreynd. ÍBV er komið upp í 7. sæti með 15 stig eftir 13 umferðir. Valur er í 5. sæti með 19 stig eftir 14 umferðir.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Keflavík15-419
6Valur16-619
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.