Fotbolti.net
04.07.26 - 18:09
Ívar Björgvinsson

Ray Anthony eftir annað markalaust jafntefli: Talaði mikið um það fyrir tímabil

Auglýsing
Ray Anthony eftir annað markalaust jafntefli: Talaði mikið um það fyrir tímabil
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Grindavík tók á móti Vestra á Grindavíkurvelli í 12. umferð Lengjudeildar karla í leik sem lauk með markalausu jafntefli. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Ray Anthony Jónsson, þjálfara Grindavíkur, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Grindavík 0 - 0 Vestri

„Ég hef bara það sama að segja eftir þennan leik og vanalega, Vestramenn voru reyndar mjög ógnandi í fyrri hálfleik og fengu betri færi en við en við vorum enn og aftur komnir í stöðu þar sem við hefðum getað gert betur. Við reyndum að klára þetta en það var líf í mínum mönnum seinasta korterið. Maður reynir alltaf að finna það jákvæða og auðvitað mjög jákvætt að halda hreinu.''

Grindvíkingar voru aðeins undir í baráttunni í fyrri hálfleiknum og Vestri fékk hættuleg færi á meðan Grindavík skapaði lítið sem ekki neitt. Í síðari hálfleiknum var leikurinn mun jafnari.

„Það sem við ræddum í hálfleik var aðallega um einhverjar færslur og þéttleika og liðið var að vinna betur saman í seinni hálfleik.''

Grindarvíkurliðið hefur spilað mikið af leikjum þar sem lítið er skorað. Í ellefu leikjum liðsins hafa aðeins verið skoruð 21 mark sem er undir tvö mörk í leik að meðaltali.

„Eins og gefur að skilja þá vantar okkur mörk. Ég talaði mikið um það fyrir tímabil að við þurfum að þétta í okkar varnarleik og við höfum gert það og næsta skref er að skora fleiri mörk. Við höldum áfram að vinna í því að það hlýtur nú að fara að detta inn.''

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.