Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   sun 12. apríl 2026 20:34
Sölvi Haraldsson
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Ingimar Arnar og prinsinn á Álftanesi að ræða málin.
Ingimar Arnar og prinsinn á Álftanesi að ræða málin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var mjög gaman eins og þú segir. Ég var búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á, hann datt bara svona skemtilega fyrir mig og við kláruðum þetta.“ sagði Ingimar Arnar Kristjánsson, leikmaður Þórs, eftir sigur á Val 2-1 en hann skoraði sigurmark gestanna í blálokin.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  2 Þór

„Það kom einhver með hann á mig, ég kötta inn á vinstri og ég set hann alveg út við stöng.“ sagði Ingimar um markið sitt góða.

Ingimar talar um að Þórsarar hafi byrjað leikinn of stressaðir en náð svo að vinna sig inn í leikinn.

„Mér fannst við pínu stressaðir í byrjun en í seinni hálfleik fannst mér við vera með tök á þeim. Svo föllum við aðeins of aftarlega á völlinn en já bara flott sko.“

Það var alvöru veisla í stúkunni hjá Þórsurum í dag.

„Þetta var mjög gaman og stuðningsmennirnir mættu eins og alltaf. Þetta er mjög góð byrjun.“

Hversu gott var það að byrja svona og hvað gefur það Þórsurum fyrir framhaldið?

„Alltaf gott að fá stig á töfluna strax. Þetta bara nærir okkur, við erum á leiðinni heim og svo er það bara endurheimt á morgun.“

Viðtalið við Ingimar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp