Fotbolti.net
12.04.26 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson

Ngumoha: Liverpool er stærsta félag heims

Rio Ngumoha er þakklátur fyrir tækifærin sem hann hefur fengið hjá Liverpool

Rio Ngumoha er þakklátur fyrir tækifærin sem hann hefur fengið hjá Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Rio Ngumoha, leikmaður Liverpool á Englandi, segir liðið vera stærsta félag heims en hann sagði þetta eftir frábæran leik sinn í 2-0 sigrinum á Fulham í gær.
Hrósar Ngumoha sem setti met á Anfield - „Hann er óttalaus“
TENGT EFNI

Hrósar Ngumoha sem setti met á Anfield - „Hann er óttalaus“

Þetta 17 ára gamli ungstirni skoraði annað deildarmark sitt með laglegu skoti undir lok fyrri hálfleiks og átti þátt í öðru markinu sem Mohamed Salah gerði nokkrum mínútum síðar.

Ngumoha hefur heillað þegar hann hefur fengið tækifærið á tímabilinu og ljóst að Liverpool er með algeran gersema í hópnum sem er reiðubúinn til að taka á sig stærra hlutverk.

Englendingurinn fagnaði af innlifun þegar hann kom Liverpool yfir og segir félagið það stærsta í heiminum.

„Það er geggjuð tilfinning að koma á Anfield og sækja þrjú stig. Andrúmsloftið var enn og aftur frábært þannig þetta var bara mjög góður dagur.“

„Þetta var sérstakt mark. Robbo (Andy Robertson) bjó til plássið fyrir mig þannig ég gat komið mér inn í teiginn og miðað boltanum í hornið.“

„Í mínum augum er Liverpool stærsta félag heims. Ég fékk tækifæri ungur og nýt trausts frá stjóranum og leikmönnunum. Nú verð ég að halda áfram að leggja mig allan fram,“
sagði Ngumoha eftir leik.

Hann er að gera sterkt tilkall í byrjunarliðið í seinni leiknum gegn Paris Saint-Germain í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, en Liverpool er 2-0 undir í einvíginu eftir tap í París í vikunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.