Fotbolti.net
23.10.26 - 21:13
Sóldís Erla

Sierra lagði skóna á hilluna fyrr á árinu en endar tímabilið á tvennu

Auglýsing
Sierra Marie Lelii leikmaður Þróttar skoraði tvennu í kvöld

Sierra Marie Lelii leikmaður Þróttar skoraði tvennu í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Sierra Marie leikmaður Þróttar lagði skóna á hilluna fyrr á árinu en leyfði rykinu heldur betur ekki að setjast á þá og skoraði tvennu í lokaleik Þróttar í Bestu deild kvenna.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 - 2 Grindavík/Njarðvík
Sierra Marie Lalli átti frábæran lokaleik á þessu tímabili en hún skoraði tvennu í leiknum.

„Það alltaf gaman að skora mörk."

Fyrr á tímabilinu lagði Sierra skóna á hilluna en þar stoppuðu þeir stutt og hún kláraði slaginn með Þrótti í sumar.

„Ég elska að vera í takkaskóm og ég er mjög glöð að hafa tekið þessa ákvörðun, þetta hefur verið mjög gaman."

Sierra tók ekki þátt á öllu tímabilinu en var þó með í stóra bikarúrslitaleiknum þar sem Þróttur vann Mjólkurbikarinn.

„Þetta tímabil var svolítið upp og niður en í heildina gekk bara mjög vel. Að mínu mati erum við bara besta lið á Íslandi."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.