Fotbolti.net
23.10.26 - 21:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Umdeilt atvik og stór mistök í Ipswich

Leif Davis

Leif Davis

Canon

Mynd: EPA

Ipswich Town 1 - 1 Nott. Forest
0-1 Neco Williams ('13 )
1-1 Julio Enciso ('41 )

Forest komst yfir þegar vinstri bakvörðurinn Neco Williams skoraði eftir fyrirgjöf frá hægri bakverðinum Daniel Munoz.

Morgan Gibbs-White var hársbreidd frá því að bæta við marki en Leif Davis bjargaði á línu.

Ipswich jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiksins þegar Julio Enciso slapp í gegn eftir hrikalega sendingu til baka frá Nikola Milenkovic.

Það kom upp umdeilt atvik þegar Issa Diop braut á James McAtee þegar sá síðarnefndi var að sleppa í gegn. Atvikið var skoðað í VAR og Diop fékk aðeins gult spjald þar sem McAtee pikkaði boltanum frá markinu.

Dan Ndoye var nálægt því að koma Forest yfir eftir rúmlega klukkutíma leik en Davis bjargaði aftur á marklínu.

Fleiri mörk litu ekki dagsins ljós og jafntefli var niðurstaðan. Ipswich er í 9. sæti með 10 stig en Forest er í 17. sæti með sex stig eftir 8 umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.