Fotbolti.net
23.10.26 - 21:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski boltinn

Vill fá annað tækifæri til að sanna sig

Vill fá annað tækifæri til að sanna sig
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski framherjinn Kaio Jorge segist vera tilbúinn að fara aftur til Juventus en hann náði ekki að sýna sitt rétta andlit á sínum tíma.

Jorge er 24 ára gamall framherji. Hann gekk til liðs við Juventus frá Santos árið 2021 og sneri aftur heim árið 2024 og samdi við Cruzeiro. Meiðsli höfðu mikil áhrif á tímann hans hjá Juventus þar sem hann spilaði 11 leiki án þess að skora.
„Ég spilaði minna en ég bjóst við. Ég vonaðist til að fá að minnsta kosti 20 mínútur í leik því ég var alltaf upp á mitt besta á æfingum og skoraði í æfingaleikjum. Meiðslin höfðu klárlega áhrif á tímann minn í Tórínó," sagði Jorge.

„Ég er mjög tengdur félaginu sem hjálpaði mér á erfiðum tíma í gegnum meiðslin og hafði trú á mér og leyfði mér að upplifa drauminn að spila í Evrópu. Ég er tilbúinn að snúa aftur til Ítalíu, jafnvel til Juve. Ég myndi gera miklu betur í dag."

Jorge hefur spilað 96 leiki og skorað 46 mörk fyrir Cruzeiro.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.