Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 12. maí 2022 18:28
Brynjar Ingi Erluson
Newcastle í viðræðum við Atlético um Renan Lodi
Renan Lodi til Englands?
Renan Lodi til Englands?
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle United er í viðræðum við Atlético Madríd um brasilíska vinstri bakvörðinn Renan Lodi en þetta segir brasilíski blaðamaðurinn Andre Hernan.

Lodi, sem er 24 ára gamall, hefur verið á mála hjá Atlético síðustu þrjú ár og vann meðal annars spænsku deildina með liðinu á síðasta tímabili.

Hann er farinn að hugsa sér til hreyfings og vill fá nýja áskorun en Hernan segir Newcastle í viðræðum við Atlético um að fá hann í sumar.

Viðræður eru komnar langt á veg og er gert ráð fyrir því að hann gangi til liðs við enska félagið í sumar.

Lodi á fimmtán A-landsleiki að baki fyrir Brasilíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner