Fotbolti.net
12.05.26 - 13:47
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Mourinho að taka við Real Madrid - Viðræður á lokastigi

Jose Mourinho.

Jose Mourinho.

Canon

Mynd: EPA

Jose Mourinho er á lokastigi viðræðna um að taka við sem stjóri Real Madrid. Fullyrt er að hinn 63 ára Mourinho sé sá eini sem spænska stórliðið hefur verið í viðræðum við.

Mourinho hefur verið stjóri Benfica í heimalandi sínu en sagði við fjölmiðlamenn í gær að hann vildi ekki ræða um framtíð sína.
„Það er leikur gegn Estoril framundan og í næstu viku get ég svarað spurningum um framtíð mína," segir Mourinho.

Leikurinn gegn Estoril á laugardag er síðasti leikur Benfica á tímabilinu.

Mourinho stýrði Real Madrid 2010-2013 þar sem hann vann La Liga, spænska Konungsbikarinn og og spænska Ofurbikarinn.

Það hefur gustað mikið um Real Madrid á þessu tímabili og mikið fjallað um rifrildi og jafnvel handalögmál bak við tjöldin. Liðið fer titlalaust í gegnum tímabilið en Alvaro Arbeloa tók við eftir að Xabi Alonso var rekinn í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.