Fotbolti.net
12.07.21 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalski boltinn

Mikael Egill í æfingahópi aðalliðsins

Mikael Egill í æfingahópi aðalliðsins
Canon

Mynd: SPAL

Aðallið Spal á Ítalíu er að byrja undirbúning sinn fyrir næsta tímabil þar sem liðið verður í B-deildinni.
Það er Íslendingur á æfingum aðalliðsins; Mikael Egill Ellertsson sem er 19 ára gamall. Hann var sumarið 2018 seldur frá Fram til SPAL á Ítalíu, en hann hefur staðið sig vel með unglingaliði félagsins.

Mikael er á meðal miðjumanna sem eru í æfingahópi Spal á þessu undirbúningstímabili.

Frá þessu er sagt á vefsíðu Spal.

Mikael hefur ekki enn spilað keppnisleik með aðalliðinu en það verður spennandi að sjá hvort hann komi á næsta tímabili. Mjög efnilegur leikmaður þarna á ferð.

Sjá einnig:
Hin hliðin - Mikael Ellertsson (Spal)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.