Fotbolti.net
12.07.26 - 22:02
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deildin: Gils gerði gæfumuninn gegn Val

Besta deildin: Gils gerði gæfumuninn gegn Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH 2 - 0 Valur
1-0 Gils Gíslason ('79)
2-0 Gils Gíslason ('88)
Lestu um leikinn: FH 2 - 0 Valur
FH og Valur áttust við í lokaleik kvöldsins í Bestu deild karla og var staðan markalaus eftir fjörugan fyrri hálfleik þar sem bæði lið komust nálægt því að skora.

FH var hættulegra liðið og fékk fleiri færi, en gestirnir úr Hlíðunum komust næst því að skora þegar Albin Skoglund þrumaði í slána úr algjöru dauðafæri þar sem hann stóð skammt frá marklínunni.

Hrikaleg færanýting kostaði bæði lið og hélt síðari hálfleikurinn áfram í sama fari. Valsarar fengu hvert dauðafærið fætur öðru og setti Tryggvi Hrafn Haraldsson boltann í netið en var flaggaður rangstæður.

FH-ingar komust aftur inn í leikinn þegar tók að líða á seinni hálfleikinn og byrjuðu að skapa hættu. Gils Gíslason var líflegur og skoraði loksins fyrsta mark leiksins eftir skyndisókn á 79. mínútu. Valsarar stöðvuðu skyndisóknina en Ingimar Torbjörnsson Stöle gaf boltann aftur til baka á Frederik Schram markvörð, nema að sendingin var alltof stutt og komst Gils inn á milli.

Gils vippaði yfir Frederik og innsiglaði sigur Hafnfirðinga níu mínútum síðar eftir gott einstaklingsframtak í skyndisókn.

Gils fékk tækifæri til að fullkomna þrennuna en tókst ekki svo lokatölur urðu 2-0 eftir kaflaskiptan leik.

FH er með 11 stig eftir 14 umferðir og er liðið taplaust í síðustu fimm leikjum í röð eftir ömurlega byrjun á sumri. Liðið er áfram í fallsæti, tveimur stigum frá öruggu sæti í Bestu deildinni.

Valur er í fimmta sæti með 19 stig.
Besta deildin: Gils gerði gæfumuninn gegn Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Gils gerði gæfumuninn gegn Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.