Fotbolti.net
12.07.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Norðmenn brjálaðir - „Fótbolti og VAR ætti að fara til helvítis"

Norðmenn brjálaðir - „Fótbolti og VAR ætti að fara til helvítis"
Canon

Mynd: EPA

Norðmenn voru ekki sáttir eftir tap liðsins gegn Englandi í 8-liða úrslitum á HM í gær.

Þeim fannst dómgæslan fara gegn sér en Erling Haaland var dæmdur brotlegur þegar Torbjörn Heggem skoraði en hann hefði þá getað komið Noregi í 2-1 forystu.
HM: England tryggði sér sæti í undanúrslitum eftir ótrúlegan leik
TENGT EFNI

HM: England tryggði sér sæti í undanúrslitum eftir ótrúlegan leik

Norski lýsandinn Danielle Hoglund sagði að fótbolti og VAR ætti að fara til helvítis.

„Báðir leikmennirnir glímdu og það voru ýktar aðgerðir af hálfu enska leikmannsins. Ákvörðun sem var næstum því hneyksli," sagði fyrrum FIFA dómarinn Svein-Erik Edvarsen.

Þá voru Norðmenn ekki sáttir með jöfnunarmark Jude Bellingham undir lok fyrri hálfleiks þar sem þeir töldu að boltin hafi farið í vír sem hélt myndavél uppi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.