Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 12. ágúst 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Liverpool ætlar ekki að lána Wilson og Grujic
Harry Wilson.
Harry Wilson.
Mynd: Getty Images
Liverpool ætlar ekki að lána miðjumennina Harry Wilson og Marko Grujic aftur á komandi tímabili en BBC segir frá þessu.

Wilson skoraði sjö mörk á láni með Bournemouth á nýliðnu tímabili en á þarsíðasta tímabili var hann í láni hjá Derby.

Grujic hefur undanfarin tvö tímabil verið á láni hjá Hertha Berlin í Þýskalandi en Serbinn var þar áður á láni hjá Cardiff.

Samkvæmt frétt BBC verða leikmennirnir í aðalliðshóp Liverpool á komandi tímabili eða seldir ef ásættanlegt tilboð berst. Lán kemur hins vegar ekki til greina.

Wilson er 23 ára landsliðsmaður frá Wales en Grujic er 24 ára gamall landsliðsmaður Serbíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner