Fotbolti.net
12.08.26 - 07:05
Brynjar Ingi Erluson

Alexis Sanchez í MLS-deildina (Staðfest)

Alexis Sanchez í MLS-deildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Montreal CF

Sílemaðurinn Alexis Sanchez hefur skrifað undir samning hjá kanadíska félaginu Montreal en samningurinn gildir út næstu leiktíð.
Sanchez, sem lék á sínum tíma með Arsenal, Barcelona og Manchester United, er enn í fullu fjöri.

Hann skoraði fjögur mörk fyrir Sevilla í La Liga á síðustu leiktíð en hefur nú ákveðið að halda í nýtt ævintýri í Bandaríkjunum.

Þetta gæti orðið síðasti áfangastaður hans á ferlinum enda verður Sanchez 38 ára í desember.

Framherjinn gekk til liðs við Montreal í gær og ætti að verða mikill liðsstyrkur. Montreal er í næstneðsta sæti Austurdeildarinnar og þarf sannarlega á liðsaukanum að halda.

Íslenskir fótboltaáhugamenn ættu að kannast vel við félagið. Dagur Dan Þórhallsson og Róbert Orri Þorkelsson hafa báðir verið á mála hjá Montreal.

Róbert lék með liðinu frá 2021 til 2024 en Dagur Dan var þar í vor og sumar áður en hann gekk til liðs við San Diego.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.