Fotbolti.net
12.08.26 - 10:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Donni hættur hjá KSÍ (Staðfest)

Donni hættur hjá KSÍ (Staðfest)
Canon

Mynd: KSÍ

Halldór Jón Sigurðsson, sem langoftast er kallaður Donni, hefur komist að samkomulagi við KSÍ um að hann láti af störfum sem þjálfari U19 ára landsliðs kvenna.

Donni hefur sinnt starfinu í tæpt ár, stýrði liðinu í gegnum undankeppni EM og kom því á lokamót í sumar.

Í tilkynningu KSÍ segir að Donni sé búsettur á Sauðárkróki og erfitt sé til lengri tíma að samræma umfang starfsins þeim ferðalögum og þeim kröfum sem fylgja starfinu.

Donni tók við U19 liðinu eftir að hafa stýrt Tindastóli um árabil með góðum árangri. Í vor var hann í framboði og er í dag varamaður í sveitastjórn Skagafjarðar.
Tilkynning KSÍ
KSÍ og Halldór Jón Sigurðsson hafa komist að samkomulagi um að Halldór Jón láti af störfum sem þjálfari U19 landsliðs kvenna.

Halldór Jón, eða Donni eins og hann er jafnan kallaður, er búsettur á Sauðárkróki og eftir yfirferð á stöðu mála hafa aðilar komist að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að erfitt sé til lengri tíma að samræma umfang starfsins þeim ferðalögum og þeim kröfum sem fylgja starfinu.

Donni hóf störf hjá KSÍ árið 2025 og hefur á þeim tíma komið að þjálfun og þróun leikmanna innan yngri landsliða kvenna. Á meðal helstu verkefna hans má nefna þátttöku U19 kvenna í lokakeppni EM sem fram fór fyrr í sumar.

KSÍ þakkar Halldóri Jóni fyrir störf hans og óskar honum velfarnaðar í þeim verkefnum sem framundan eru.
Donni hættur hjá KSÍ (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.