12.08.26 - 10:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Einn efnilegasti leikmaður landsins" í Laugardalinn (Staðfest)

Mynd: Þróttur

Mynd: Þróttur

Björgey Njála Andreudóttir er gengin í raðir Þróttar en hún kemur frá Selfossi.
Björgey hefur skrifað undir þriggja ára samning við Þrótt.
„Björgey hefur spilað með yngri landsliðum Íslands og er einn efnilegasti leikmaður landsins. Hún lék með yngri flokkum Þróttar upp að fimmta flokki og er því loksins komin heim," segir í tilkynningu Þróttara.

Hún er fædd árið 2010 og hefur spilað 12 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Hún spilaði með Selfossi í 2. deild í fyrra og hefur leikið með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Hún er núna komin í Bestu deildina.
Þróttur á heimaleik í kvöld gegn Val. Bæði lið eru í neðri hluta Bestu deildarinnar, sitja í 8. og 9. sæti deildarinnar.
Þróttur á heimaleik í kvöld gegn Val. Bæði lið eru í neðri hluta Bestu deildarinnar, sitja í 8. og 9. sæti deildarinnar.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | FH | 13 | +25 | 30 |
| 2 | Breiðablik | 13 | +24 | 30 |
| 3 | Stjarnan | 14 | +5 | 23 |
| 4 | ÍBV | 14 | -3 | 21 |
| 5 | Grindavík/Njarðvík | 14 | -5 | 19 |
| 6 | Fram | 14 | -11 | 16 |
| 7 | Þór/KA | 14 | -5 | 15 |
| 8 | Þróttur R. | 14 | -5 | 15 |
| 9 | Valur | 14 | -12 | 13 |
| 10 | Víkingur R. | 14 | -13 | 11 |