Fotbolti.net
12.08.26 - 09:42
Elvar Geir Magnússon

Guessand aftur lánaður til Palace (Staðfest)

Evann Guessand fagnar marki með Palace.

Evann Guessand fagnar marki með Palace.

Canon

Mynd: EPA

Fílabeinsstrendingurinn Evann Guessand er kominn aftur á lán til Crystal Palace frá Aston Villa. Hann var á láni hjá Palace seinni hluta síðasta tímabils og hjálpaði liðinu að vinna Sambandsdeildina.
Hann hafði leikið með Aston Villa í Evrópudeildinni fyrri hluta tímabilsins og fékk því einnig verðlaunapening þegar Villa vann þá keppni. Guessand varð þar með Evrópumeistari með tveimur félögum á sama tímabilinu.

Framherjinn, sem er 25 ára sneri aftur til Villa í sumar en er ekki inni í framtíðaráætlunum Unai Emery. Palace ákvað að virkja ekki kaupákvæðið í lánssamningi Guessand eftir síðasta tímabil en hefur nú fengið hann aftur lánaðan.

Guessand lék tvo leiki með Fílabeinsströndinni á HM í sumar.

Guessand aftur lánaður til Palace (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.