12.08.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hull fær tvo nýja leikmenn (Staðfest) - Borga aftur metfé

Mynd: Hull

Mynd: Hull
Hull, nýliðar í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili, tilkynnti um komu tveggja nýrra leikmanna í dag.
Senegalski varnarmaðurinn Nobel Mendy gekk til liðs við félagið frá Rayo Vallecano fyrir metfé.
Kaupverðið er ekki gefið upp en félagið borgaði meira fyrir hann en gríska markvörðinn Konstantinos Tzolakis sem gekk til liðs við félagið frá Olympiakos fyrr í sumar fyrir um 20 milljónir punda.
Mendy er 21 árs og spilaði 24 leiki í spænsku deildinni á láni hjá Vallecano frá Betis en hann gekk alfarið til liðs við Vallecano í sumar. Hann getur spilað miðvörð og vinstri bakvörð.
Þá gekk ástralski miðvörðurinn Lucas Herrington til liðs við félagið frá Colorado Rapids. Hann var í ástralska landsliðshópnum á HM í sumar sem féll úr leik í 32-liða úrslitum. Hann klikkaði í vítaspyrnukeppni gegn Egyptum.