Fotbolti.net
12.08.26 - 11:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Keflavík fær leikmann frá Standard Liege (Staðfest)

Fór frá Króatíu til Standard Liege fyrir fjórum árum síðan.

Fór frá Króatíu til Standard Liege fyrir fjórum árum síðan.

Canon

Mynd: Standard Liege

Mate Simicic er genginn í raðir Keflavíkur en hann kemur frá belgíska félaginu Standard Liege, þar hefur hann spilað með varaliði félagsins.

Simicic er nokuð hávaxinn króati sem fæddur er 2005 og getur bæði spilað sem hafsent og varnarsinnaður miðjumaður.

Hann hefur spilað í þriðju efstu deild í Belgíu, en kom einu sinni inn á í belgísku úrvalsdeildinni í lok þarsíðasta tímabils.
Keflvíkingar vonast til að fá inn tvo fyrir gluggalok
TENGT EFNI

Keflvíkingar vonast til að fá inn tvo fyrir gluggalok

Keflavík hefur verið í leit að liðsstyrk fyrir lokasprettinn í Bestu deildinni og greindi Fótbolti.net frá því í gær að Keflvíkingar ætluðu sér að reyna fá tvo menn inn fyrir gluggalok í kvöld.

Simicic er kominn með leikheimild og gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Þór á Akureyri á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.