Fotbolti.net
12.08.26 - 16:35
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Lukaku til Fenerbahce (Staðfest)

Romelu Lukaku.

Romelu Lukaku.

Canon

Mynd: EPA

Napoli hefur formlega selt Romelu Lukaku til Fenerbahce fyrir upphæð sem sögð er nema 6 milljónum evra. Upphæðin gæti hækkað eftir ákvæðum. Hann gerir eins árs samning í Tyrklandi, með möguleika á ári til viðbótar.

Samkomulagið náðist fyrr í vikunni og greint er frá því að hann hafi gengist undir læknisskoðun í Belgíu, en þar hafði hann dvalið eftir þátttöku á HM.
Lukaku, sem er 33 ára sóknarmaður, gekk til liðs við Napoli frá Chelsea sumarið 2024 og skoraði alls 14 mörk í 45 keppnisleikjum og vann bæði ítölsku A-deildina og ítalska Ofurbikarinn.

Hann spilaði lítið síðasta tímabil vegna meiðsla og það hafði einnig áhrif á form hans á heimsmeistaramótinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.