12.08.26 - 21:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rafal Stefán til Keflavíkur (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Markvörðurinn Rafal Stefán Daníelsson er genginn til liðs við Keflavík frá Haukum.
Rafal Stefán (2001) gekk til liðs við Hauka frá Gróttu fyrir síðasta tímabil og kom við sögu í einum leik síðasta sumar.

Rafal Stefán er uppalinn hjá Fram en hann lék með Þrótti Vogum frá 2020-2022 áður en hann gekk til liðs við Gróttu.
Sænski markvörðurinn Mirsad Basic yfirgaf Keflavík á dögunum en hann gekk til liðs við félagið í vor eftir að Sindri Kristinn Ólafsson hélt til Svíþjóðar. Basic handarbrotnaði í sumar og hefur Helgi Bergmann Hermannsson verið á bekknum síðan.