12.08.26 - 09:47
Elvar Geir Magnússon
Roma fær silfurverðlaunahafa frá HM (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentínski landsliðsmaðurinn Nahuel Molina er kominn til Roma á Ítalíu en félagið staðfesti þetta í morgunsárið. Molina er 28 ára gamall hægri bakvörður sem varð heimsmeistari með Argentínu fyrir fjórum árum og var í liðinu sem vann silfur á heimsmeistaramótinu í sumar.
Hann hefur leikið með Atlético Madríd undanfarin fjögur ár undir stjórn landa síns, Diego Simeone. Þar áður spilaði hann með Udinese á Ítalíu og Boca Juniors í heimalandinu.
Molina mun klæðast treyju númer 20 hjá Roma. Áður höfðu Santiago Castro, Kostas Koulierakis og Daniele Ghilardi gengið til liðs við félagið. Þá keypti Roma Donyell Malen frá Aston Villa eftir að hann lék með liðinu á láni síðari hluta síðasta tímabils.

Benvenuto a Roma, Nahuel ????????#ASRoma pic.twitter.com/0sSfgn4fgp
— AS Roma (@OfficialASRoma) August 12, 2026