12.08.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Styttist í samkomulag um Ferran sem mætir ekki til æfinga

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Paris Saint-Germain er við það að ganga frá samkomulagi um Ferran Torres, sóknarmann Barcelona.
Viðræður PSG og Barcelona um Ferran Torres hafa þokast áfram undanfarna daga og hefur franska félagið þegar náð samkomulagi við leikmanninn um kaup og kjör.
Franskir fjölmiðlar segja Ferran ekki munu mæta til æfinga hjá Barcelona næstu daga. Hann býr sig þess í stað undir að halda til Parísar.
Búist er við að félögin nái endanlegu samkomulagi eftir úrslitaleik Ofurbikars Evrópu sem fer fram í kvöld.
Ferran er 26 ára gamall og uppalinn hjá Valencia. Hann fór ungur til Manchester City þar sem hann lék í eitt og hálft tímabil áður en Barcelona keypti hann árið 2022.
Hann skoraði 21 mark í öllum keppnum á síðustu leiktíð þegar Barcelona varð Spánarmeistari.
Ferran tryggði síðan Spáni heimsmeistaratitilinn í sumar með sigurmarkinu gegn Argentínu í framlengingu úrslitaleiksins.