Fotbolti.net
12.08.26 - 14:29
Kári Snorrason

Þessir hafa verið orðaðir við þjálfarastöðu KA

Heimir Guðjónsson hefur verið orðaður við þjálfarasæti KA.

Heimir Guðjónsson hefur verið orðaður við þjálfarasæti KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gengi KA í sumar hefur verið langt undir væntingum. Félagið blés í herlúðra fyrir tímabil og keypti meðal annars Króatíufarana tvo; Danijel Dejan Djuric og Oliver Heiðarsson.

Liðið er sem stendur með 15 stig í ellefta sæti deildarinnar og aðeins unnið einn leik af síðustu ellefu deildarleikjum. Ásamt því féll liðið óvænt úr leik gegn Ægi í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í vor. Ægir er í botnsæti Lengjudeildarinnar.

Það ætti því að vera óhætt að segja að sæti Hallgríms Jónassonar sé orðið heitt og eru háværar sögusagnir um að KA sé að líta í kringum sig.

Sparkspekingurinn Kristján Óli Sigurðsson greindi frá gróusögu að norðan á X-síðu sinni þar sem því er haldið fram að KA hafi þegar gengið frá ráðningu á manni sem taki við liðinu að tímabilinu loknu.

Fótbolti.net setti saman lista yfir átta menn sem hafa verið orðaðir við þjálfarasætið.
Heimir Guðjónsson
Heimir tók við Fylki síðasta vetur eftir að hafa verið með FH þar áður. Hann er einn sigursælasti þjálfari landsins og er í harðri toppbaráttu með Fylki í Lengjudeildinni.

Sem leikmaður lék Heimir eitt tímabil með KA, árið 1990. Hann er samningsbundinn Fylki út næsta ár en hann gæti hugsanlega tekið við KA eftir tímabil.

Hermann Hreiðarsson
Hemmi var rekinn frá Val fyrr í sumar og er sem stendur án starfs. Hann stýrði HK á síðasta tímabili og kom liðinu í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar.

Srdjan Tufegdzic, Túfa
Túfa þekkir KA betur en flestir. Hann var hjá liðinu sem leikmaður og tók síðar við liðinu. Hann var rekinn frá sænska B-deildar liðinu Varnamö fyrr í sumar og er laus allra mála.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson
Siggi Raggi er að gera góða hluti í Færeyjum með NSÍ Runavík. Félagið er með þriggja stiga forystu á toppi færeysku deildarinnar.

Hann hefur einnig náð eftirtektarverðum árangri með liðinu í Evrópu en liðið er komið í þriðju umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Liðið er 2-0 undir í einvígi gegn svissneska liðinu Lugano en seinni leikurinn fer fram í Runavík á morgun.

Jökull Elísabetarson
Jökull var látinn taka poka sinn sem þjálfari Stjörnunnar fyrr í sumar. Hann hafði verið lengi með liðið og kom því í Evrópukeppni á síðasta tímabili.

Aron Baldvin Þórðarson
Aron er aðstoðarþjálfari Víkings og hefur verið mikið látið með hann. Hann var nálægt því að taka við ÍBV fyrir tímabil en ráðningin datt upp fyrir sig á lokametrunum.

Aron, sem er 31 árs, hefur ekki áður verið aðalþjálfari en er klárlega spennandi kostur.

Borja Martin Iglesias
Borja tók við Völsungi snemma tímabils eftir að ævintýramaðurinn Patrick De Wilde var rekinn. Komandi inn í tímabilið var búist við því að Völsungur yrði fallbyssufóður í Lengjudeildinni en það hefur alls ekki verið raunin.

Liðið er í 11. sæti Lengjudeildarinnar með 14 stig, þremur stigum frá öruggu sæti. Iglesias er 33 ára Spánverji sem hefur sýnt að það er mikið í hann spunnið.

Halldór Jón Sigurðsson, Donni
Donni sagði upp störfum sem þjálfari U19 ára landsliðs kvenna í gær eftir að hafa sinnt starfinu í tæpt ár. Þar áður stýrði hann kvennaliði Tindastóls við góðan orðstýr.

Hann er búsettur á Sauðárkróki og er hann varamaður í sveitastjórn Skagafjarðar.
Heitt undir Hallgrími.

Heitt undir Hallgrími.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Túfa var rekinn frá Varnamö fyrr í sumar.

Túfa var rekinn frá Varnamö fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Baldvin er spennandi kostur.

Aron Baldvin er spennandi kostur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Iglesias hefur náð góðum árangri með Völsung.

Iglesias hefur náð góðum árangri með Völsung.

Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Jökull Elísabetarson var látinn taka poka sinn fyrr í sumar.

Jökull Elísabetarson var látinn taka poka sinn fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA hefur unnið einn af síðustu ellefu deildarleikjum.

KA hefur unnið einn af síðustu ellefu deildarleikjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.18+4245
2KR18+2539
3Fram18+1137
4Breiðablik18+629
5Valur18-522
6ÍA18-622
7Keflavík18-622
8Stjarnan18-1021
9ÍBV18-917
10FH18-1017
11KA18-1215
12Þór18-2615
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.