12.08.26 - 19:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Valgeir Lunddal til Viborg (Staðfest)

Mynd: Viborg

Mynd: Viborg
Valgeir Lunddal Friðriksson er genginn til liðs við danska félagið Viborg á frjálsri sölu.
Valgeir var án félags eftir að hann yfirgaf þýska félagið Dusseldorf eftir síðasta tímabil. Samningur hans upphaflega í gildi til ársins 2028 en ákvæði var í samningnum um að ef liðið skyldi falla myndi samningurinn falla úr gildi.

Viborg er í 6. sæti í dönsku úrvalsdeildinni með fjögur stig eftir þrjár umferðir. Liðið endaði í 5. sæti á síðustu leiktíð.
Valgeir, sem er 24 ára hægri bakvörður, á að baki 16 landsleiki. Hann glímdi við mikil meiðsli á síðasta tímabili og spilaði hann því aðeins 13 leiki.