Fotbolti.net
12.08.26 - 19:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Xavi tekinn við hollenska landsliðinu (Staðfest) - „Sonur hollenska fótboltans"

Xavi tekinn við hollenska landsliðinu (Staðfest) - „Sonur hollenska fótboltans"
Canon

Mynd: Holland

Xavi Hernandez hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Hollands. Hann gerir samning út HM 2030. Hann tekur við af Ronald Koeman sem sagði af sér eftir vonbrigðin á HM í sumar þar sem liðið tapaði gegn Marokkó í 32-liða úrslitum.

Xavi er 46 ára gamall Spánverji. Hann spilaði nær allan sinn feril hjá Barcelona og stýrði liðinu á sínum tíma. Það eru sterk tengsl við Holland hjá spænska félaginu.
„Ég tel það mikinn heiður að verða aðalþjálfari hollenska landsliðsins. Þar sem ég æfði hjá FC Barcelona, ??þar sem Johan Cruyff og Rinus Michels hafa haft sterk áhrif, finn ég fyrir sérstökum tengslum við hollenskan fótbolta. Það mætti ??segja að ég sé svolítið sonur hollenska fótboltans. Aðrir frábærir þjálfarar, sérstaklega Louis van Gaal, sem ég spilaði minn fyrsta leik undir, og Frank Rijkaard, hafa einnig gegnt mikilvægu hlutverki í að móta mig sem leikmann og þjálfara,“ sagði Xavi.

Þjálfarateymið verður mótað á næstu vikum en Xavi segir að það verði samansett af mönnum sem þekkja hollenska boltann vel.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.