12.10.04 - 11:24
Magnús Már Einarsson
Jankovic að taka við 2. og meistaraflokk Grindavíkur


Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson


Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Samkvæmt öruggum heimildum Fótbolti.net er Milan Stefán Jankovic sem að er hættur sem þjálfari Keflavíkur að taka við öðrum flokki hjá Grindavík. Jankovic er fyrrum leikmaður og þjálfari Grindavíkur en talið er að hann taki við öðrum flokki félagsins og verði einnig aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokk ef að Guðjón Þórðarson tekur við liðinu.
Við hér á Fótbolti.net munum fylgjast áfram með þessu máli en fyrir viku eða svo greindum við fyrstir frá því að Guðjón væri á leið til Grindavíkur með Jankovic sem aðstoðarmann.
Sjá einnig:
Milan Stefán Jankovic hættur hjá Keflavík (Staðfest)
Frétt okkar fyrr í mánuðinum um að Guðjón Þórðarson og Milan Stefán séu að taka við Grindavík
Sjá einnig:
Milan Stefán Jankovic hættur hjá Keflavík (Staðfest)
Frétt okkar fyrr í mánuðinum um að Guðjón Þórðarson og Milan Stefán séu að taka við Grindavík
