12.10.04 - 19:14
Magnús Már Einarsson
Einkaviðtal við Jankovic - Hann mun aðstoða Guðjón

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Milan Stefán Jankovic hætti sem þjálfari bikarmeistara Keflavíkur í gær. Við hittum hann að máli í Grindavík í dag og spurðum hann nokkurra spurninga en hann hefur staðfest það sem að Fótbolti.net greindi fyrstur fjölmiðla frá að hann verði aðstoðarmaður Guðjóns Þórðarsonar verði sá síðarnefndi ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Grindavík.
Hver var ástæða þess að þú hættir hjá Keflavík?
Ég ætlaði að breyta til og koma til Grindavíkur. Þegar að ég kom hingað fyrir tólf árum síðan þá gaf Grindavík mér séns sem leikmaður og þjálfari. Ég ætla að upplifa þetta sem að ég gerði með Keflavík með Grindavík og vonandi verður Grindavík einhverntímann Íslands eða bikarmeistari. Þetta var frábær tími í Keflavík en samningur minn var búinn og ég ákvað að breyta til.
Verður þú aðstoðarmaður Guðjóns Þórðarsonar með meistaraflokk Grindavíkur? Já ef að hann verður ráðinn.
Á hverju veltur það hvort að Guðjón verði ráðinn eða ekki?
Ég held að þeir ætli að tala við hann núna í vikunni en ég er ekki alveg viss. Vonandi verður hann þjálfari hér.
Verður þú líka með yngri flokka hér?
Já annan flokk. Áður en að ég fór til Keflavíkur þá þjálfaði ég fjórða flokk Grindavíkur og strákarnir sem að voru þá í fjórða flokk eru núna komnir í annan flokk.
Sjá einnig:
Milan Stefán Jankovic hættur hjá Keflavík (Staðfest)
Frétt okkar fyrr í mánuðinum um að Guðjón Þórðarson og Milan Stefán séu að taka við Grindavík