Sergio Ramos, leikmaður Real Madrid á Spáni, er nú leikjahæsti leikmaðurinn í sögu spænska landsliðsins.
Ramos, sem er 33 ára gamall, er að spila gegn Norðmönnum í undankeppni Evrópumótsins en þetta er landsleikur númer 168 hjá honum.
Hann fer því fram úr Iker Casillas en markvörðurinn spilaði 167 landsleiki.
Ramos er á góðri leið með að vera landsleikjahæsti í heimi en Ahmed Hassan spilaði 184 landsleiki fyrir Egyptaland á ferlinum.
Ramos hóf landsliðsferilinn árið 2005 en hann var þá á mála hjá Sevilla.
Athugasemdir