Fotbolti.net
12.10.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Daði Berg á leið í aðra aðgerð

Myndir sem Hafliði Breiðfjörð tók í gær.

Myndir sem Hafliði Breiðfjörð tók í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Berg Jónsson er á leið í aðgerð eftir næstu helgi en það er ekki fyrsta aðgerðin sem hann þarf að gangast undir.

Síðustu misseri hafa verið erfið hjá Daða eftir að hafa meiðst þegar hann var leikmaður Vestra á láni frá Víkingi síðasta sumar. Hann sagði í viðtali við Fótbolta.net fyrr í sumar að það hefði hreinlega verið óvíst hvort hann myndi spila fótbolta aftur.
Súrsæt tilfinning eftir leik á Akureyri - „Stutt síðan ég hélt að ég þyrfti bara að hætta"
TENGT EFNI

Súrsæt tilfinning eftir leik á Akureyri - „Stutt síðan ég hélt að ég þyrfti bara að hætta"

„Planið er að spila næsta laugardag gegn Blikum og fara svo í aðgerð á mánudeginum. Þá tekur við tveggja til þriggja mánaða endurhæfing og svo er maður bara mættur aftur á völlinn," sagði Daði Berg í viðtali við Vísi eftir leikinn gegn ÍA í gær.

Daði fór í aðgerð hægra megin á mjöðminni síðasta vetur en mun nú fara í aðgerð vinstra megin.

Daði Berg er sóknarmaður sem fæddur er 2006 og var á síðasta tímabili valinn efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar hér á Fótbolti.net. Hann hefur skorað tvö mörk í Bestu deildinni í sumar í sjö leikjum og kom einnig við sögu í þremur Evrópuleikjum.
Daði Berg á leið í aðra aðgerð
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.