12.10.26 - 09:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sigurður Arnar orðaður við Val

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Arnar Magnússon, lykilmaður í liði ÍBV, verður samningslaus eftir tímabilið og er óvíst hvort hann verði áfram hjá ÍBV sem féll úr Bestu deildinni um helgina eftir tap gegn Þór.
Sigurður Arnar er fæddur 1999 og hefur leikið í Eyjum allan sinn feril á Íslandi en hann hefur einnig leikið með Buckeyes sem er lið Ohio State háskólans í Bandaríkjunum.

Hann er miðvörður sem getur einnig spilað sem varnarsinnaður miðjumaður. Hann skoraði þrjú mörk í Bestu deildinni í fyrra og á að baki einn U21 landsleik.
Í Innkastinu þar sem 25. umferð Bestu deildarinnar var gerð upp var Sigurður orðaður við Val og Hlíðarendafélagið sagt hafa sett sig í samband við leikmanninn.
Halldór Árnason tekur við sem þjálfari Vals eftir tímabilið og miðverðirnir Hólmar Örn Eyjólfsson og Markus Nakkim verða samningslausir í lok tímabils.