Fotbolti.net
23.11.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Carragher um Wirtz: Mér skjátlaðist

Skapaði tíu færi úr opnum leik

Carragher um Wirtz: Mér skjátlaðist
Canon

Mynd: EPA

Fótboltasérfræðingurinn Jamie Carragher tjáði sig um Florian Wirtz eftir 4-0 stórsigur Liverpool gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær.
England: Auðvelt fyrir Liverpool gegn Man Utd
TENGT EFNI

England: Auðvelt fyrir Liverpool gegn Man Utd

Wirtz fór á kostum er Liverpool rúllaði yfir tíu leikmenn Man Utd og hefðu heimamenn hæglega getað skorað fjögur mörk til viðbótar.

Wirtz skoraði og lagði upp í leiknum eftir að hafa skapað tíu færi úr opnum leik. Enginn leikmaður hefur skapað meira í einum úrvalsdeildarleik síðan David Silva bjó til ellefu færi með Manchester City gegn West Bromwich Albion í mars 2015.

„Ég hef verið mjög gagnrýninn á Wirtz en hann hefur verið frábær að undanförnu. Mér skjátlaðist þegar ég sagði að Rio (Ngumoha) hafi verið besti leikmaður vallarins í dag, út af því að það var í raun og veru Wirtz," sagði Carragher í útsendingu Sky Sports.

„Þetta er ástæðan fyrir kaupverðinu."

23 ára Wirtz hefur verið í miklu stuði að undanförnu og er búinn að skora fimm mörk og gefa tvær stoðsendingar í síðustu fjórum leikjum með Liverpool og þýska landsliðinu.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.