Fotbolti.net
12.10.26 - 14:01
Snæbjört Pálsdóttir

Steini: Við fögnum ekki fyrr en eftir leik

Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálari, segir HM-sætið vera draum alls íslenska hópsins en vill ekki sjá liðið fara fram úr sér.

Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálari, segir HM-sætið vera draum alls íslenska hópsins en vill ekki sjá liðið fara fram úr sér.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kvennalandslið

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands, stóð fyrir svörum á blaðamannafundi í dag fyrir seinni leikinn gegn Króatíu á Laugardalsvellinum á morgun. Leikurinn hefst klukkan 17:30 og er liður í umspili um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári.

Ísland vann fyrri leik liðanna 4-0 ytra og stendur því vel að vígi fyrir síðari viðureignina. Steini segir verkefnið þó alls ekki afgreitt.

„Það sem við höfum talað um er að við erum ekki búin að klára þetta. Staðan er góð en við ætlum að halda einbeitingu, halda okkur á tánum og stefna að því að spila annan góðan leik á morgun,“ sagði Steini.


Hann vill sjá íslenska liðið nálgast leikinn af fullum krafti og byggja ofan á frammistöðuna í fyrri viðureigninni.

„Þetta er ekki búið. Við fögnum ekki fyrr en eftir leik.“


Steini staðfesti jafnframt að allir leikmenn liðsins væru heilir eftir fyrri leikinn og hefðu tekið þátt í æfingu dagsins.

Íslenska liðið er komið í góða stöðu í baráttunni um sæti á heimsmeistaramótinu og Þorsteinn viðurkennir að erfitt sé að leiða hugann ekki að mögulegri HM-þátttöku.

„Auðvitað er þetta draumur, og ekki bara fyrir mig heldur held ég líka fyrir alla leikmennina og starfsliðið.“


Enn séu þó mörg skref eftir áður en hægt verði að fagna sæti á mótinu í Brasilíu.

„Að sama skapi er þetta bara einn leikur í einu. Við eigum eftir að taka mörg skref áður en við getum sagt að þetta sé í höfn.“

„Við erum bara að taka eitt skref í einu og þurfum að taka hvert skref virkilega vel. Við getum ekki farið fram úr okkur.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.