Fotbolti.net
12.10.26 - 10:00
Innkastið

Stjarnan og FH meðal félaga sem vilja Stefan Ljubicic

Stefan Ljubicic.

Stefan Ljubicic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefan Ljubicic, sóknarmaður Keflavíkur, er eftirsóttur en í Innkastinu var sagt að FH og Stjarnan vilji fá hann í sínar raðir. Í þættinum var þó talað um að hann gerði sér sjálfur vonir um að fara út í atvinnumennsku.

Í slúðurpakkanum sem var birtur í síðustu viku var sagt frá því að hann væri einn af þeim sóknarmönnum sem væru á blaði hjá Íslandsmeisturum Víkings.
Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti
TENGT EFNI

Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti

Stefan Ljubicic er 27 ára. Þessi stóri og stæðilegi sóknarmaður hefur verið gríðarlega öflugur fyrir Keflavík í Bestu deildinni í sumar og er með tíu mörk í sautján leikjum.

Hann er með lausan samning og ræddi um það við Fótbolta.net nýlega.

„Ég hugsa út í allt. Ég er búinn að fara út og komið heim. Hugurinn er ennþá á því að fara út í atvinnumennsku, en fara þá í eitthvað almennilegt sem ég sé almennilega framtíð í. Það er allt opið hjá mér, ætla klára tímabilið vel og svo kemur í ljós hvað er í boði, bæði hér heima og úti," sagði Stefan.

Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.