12.10.26 - 10:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
U17 vann öflugan sigur á Tékkum og mætir Þýskalandi í dag

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

Ísland 3 - 0 Tékkland
1-0 Sara Rún Auðunsdóttir ('53)
2-0 Bára Björk Jóelsdóttir ('78)
3-0 Kara Guðmundsdóttir ('82)
1-0 Sara Rún Auðunsdóttir ('53)
2-0 Bára Björk Jóelsdóttir ('78)
3-0 Kara Guðmundsdóttir ('82)
Stelpurnar í U17 landsliðinu unnu 3-0 sigur á Tékklandi í fyrsta leik sínum í fyrri umferð undankeppni EM 2027, en leikið er í Þýskalandi.
Sara Rún Auðunsdóttir, Bára Björk Jóelsdóttir og Kara Guðmundsdóttir skoruðu mörk Íslands í leiknum. Sara Rún er skráð í Selfoss en hún er búin að semja við FH, Bára Björk er leikmaður Breiðabliks og Kara er leikmaður KR og var valin efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar í sumar. Bára Björk lagði upp mark Köru sem innsiglaði sigurinn.
Tilraunafjöldinn var svipaður hjá liðinu en íslenska liðið átti talsvert fleiri tilraunir á markið. Þýskaland vann 9-0 sigur á Kasakstan í hinum leik riðilsins.
Ísland mætir Þýskalandi í dag klukkan 10:30 að íslenskum tíma. Hér má nálgast beina útsendingu frá leiknum.