Fotbolti.net
12.11.26 - 11:33
Kári Snorrason

Hvar stendur Carrick í samanburði við aðra stjóra United?

Rekinn í morgun.

Rekinn í morgun.

Canon

Mynd: EPA

Tilkynnt var um brottrekstur Michael Carrick frá Manchester United fyrr í morgun. Gengi liðsins hefur verið langt undir væntingum á tímabilinu og situr liðið í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni.

Carrick tók við sem bráðabirgðastjóri liðsins í janúar og náði góðum árangri. United endaði í 3. sæti deildarinnar á síðasta tímabili og var Carrick verðlaunaður með stjórasætinu til frambúðar.

Síðan þá hefur lítið gengið og hefur United aðeins tekið að vinna þrjá leiki af fimmtán í öllum keppnum á yfirstandandi tímabili.
Carrick rekinn frá United (Staðfest)
TENGT EFNI

Carrick rekinn frá United (Staðfest)

Þriðja lægsta sigurhlutfallið
En hvar stendur Carrick í samanburði við aðra stjóra liðsins? BBC tók saman sigurhlutfall þjálfara sem hafa stýrt liðinu í meira en 25 leikjum frá því að Sir Alex Ferguson lét af störfum 2013.

Sir Alex var með tæplega 60% sigurhlutfall í brúnni á Old Trafford. Næstur þar á eftir fylgir José Mourinho með 58% sigurhlutfall.

Neðstir á lista er Ralf Rangnick og Ruben Amorim með 38% sigurhlutfall. Þar á eftir fylgir Michael Carrick með 47% sigurhlutfall í öllum keppnum.

Mynd: BBC

Taflan frá því að Carrick tók við
Stigasöfnun United eftir að Carrick tók við sem bráðabirgðastjóri í janúar var framar vonum. Liðið var í 7. sæti deildarinnar eftir 21 umferð þegar hann tók við en undir stjórn Carrick sótti liðið 39 stig í síðustu 17 leikjum tímabilsins og endaði í 3. sæti.

Aðeins tvö lið eru með fleiri stig í ensku úrvalsdeildinni en United frá því að Carrick tók við.

Mynd: BBC

Carrick tók við liðinu sem bráðabirgðastjóri í janúar.

Carrick tók við liðinu sem bráðabirgðastjóri í janúar.

Canon

Mynd: EPA

Mourinho er með besta árangurinn af stjórum United eftir Sir Alex.

Mourinho er með besta árangurinn af stjórum United eftir Sir Alex.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Næsti leikur liðsins er gegn Liverpool á Anfield.

Næsti leikur liðsins er gegn Liverpool á Anfield.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.