Fotbolti.net
12.11.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fékk tilboð frá Englandi en gat ekki hafnað Real Madrid

Fékk tilboð frá Englandi en gat ekki hafnað Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Carlos Espi gekk til liðs við Real Madrid frá Levante í sumar en hann segist hafa hafnað tilboðum úr ensku úrvalsdeildinni.

Espi er 21 árs gamall spænskur framherji en hann hefur skorað þrjú mörk í 11 leikjum fyrir Real Madrid.
„Það voru möguleikar í úrvalsdeildinni en þegar Real Madrid mætti þá gat ég ekki hafnað því. Þetta gerðist allt mjög hratt, þetta var allt klappað og klárt á tveimur dögum," sagði Espi.

Þá var hann spurður út í það hvernig sé að æfa með Kylian Mbappe.

„Það sem kom mér mest á óvart er hversu góður hann er, hversu snöggur og hvernig hann rekur boltann," sagði Espi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.