Fotbolti.net
12.11.26 - 10:18
Kári Snorrason

Arsenal blandar sér í baráttuna um Scott

Alex Scott er eftirsóttur.

Alex Scott er eftirsóttur.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Arsenal blandar sér í baráttuna um Alex Scott, Liverpool vill framlengja við Nyoni og Pep Guardiola er efstur á óskalista Bandaríkjana skyldi Pochettino taka við Man Utd. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins sem er í boði Powerade.
Arsenal hefur blandað sér í kapphlaupið um enska miðjumanninn Alex Scott (23). Félagið hefur, eins og Chelsea og Liverpool, sett sig í samband við Bournemouth en hann er samningsbundinn félaginu til sumarsins 2028. (i Sport)

Bandaríska fótboltasambandið vill fá Pep Guardiola til að taka við landsliðinu ef Mauricio Pochettino verður næsti stjóri Manchester United. (talkSPORT)

Chelsea, Real Madrid og Atletico Madrid fylgjast með spænska miðjumanninum Martin Zubimendi (27), leikmanni Arsenal, og vonast til að geta fengið hann í janúar. (The Independent)

Zubimendi (27) segist vera ánægður í Lundúnum og er hissa á sögusögnunum um framtíð sína, hann segist ekki hafa rætt við neinn um hugsanleg vistaskipti. (Marca)

Liverpool ætlar að bjóða Trey Nyoni (19) nýjan samning eftir góða frammistöðu hans á tímabilinu. (GiveMeSport)

Manchester United hefur bætt Nathan Collins (25), leikmanni Brentford og Calvin Bassey (26), leikmanni Fulham, á óskalista sinn. Jarrad Branthwaite (24), varnarmaður Everton, er einnig á listanum. (Daily Mail)

Bournemouth, Everton og Nottingham Forest vilja öll fá Andres Gomez (24), framherja Vasco da Gama. Brasilíska félagið metur hann á um 17 milljónir punda. (ESPN)

Brentford ætlar að hafna öllum tilboðum frá Liverpool í vinstri bakvörðinn El Hadji Malick Diouf (21). (Football Insider)

Aston Villa íhugar að fá belgíska miðjumanninn Romeo Lavia (22) frá Chelsea. (Fussball News, TEAMtalk)

Juventus vill fá alsírska vinstri bakvörðinn Rayan Ait-Nouri (25) á láni frá Manchester City í janúar. (Gazzetta dello Sport)

Barcelona hefur einnig áhuga á Ait-Nouri (25) en spænski vinstri bakvörðurinn Alejandro Balde (23) gæti yfirgefið félagið í janúar. (Sport)

Barcelona hefur áhuga á enska varnarmanninum Levi Colwill (23) en Chelsea segir hann ekki til sölu. (Football Insider)
Zubimendi segist vera ánægður hjá Arsenal.

Zubimendi segist vera ánægður hjá Arsenal.

Canon

Mynd: EPA

Lavia á óskalista Aston Villa.

Lavia á óskalista Aston Villa.

Canon

Mynd: EPA

Juventus og Barcelona með augastað á Ait-Nouri.

Juventus og Barcelona með augastað á Ait-Nouri.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.