12.11.26 - 14:14
Kári Snorrason
Sage ekki lengi að finna sér nýtt starf

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Crystal Palace tilkynnti í hádeginu að liðið hefði vikið Pierre Sage úr störfum sem þjálfara liðsins.
Franski stjórinn tók við liðinu í sumar hafandi stýrt Lens í Frakklandi í eitt ár. Hann náði eftirtektarverðum árangri með liðið sem hafnaði í 2. sæti í Ligue 1 á síðustu leiktíð.

TENGT EFNI
Sage rekinn frá Palace eftir 16 leiki (Staðfest)
Sage verður ekki lengi án starfs en Foot Mercato greinir frá því að hann sé að snúa aftur til starfa hjá Lens.
Gengi franska liðsins hefur verið undir væntingum á tímabilinu en liðið er í 11. sæti með 13 stig í Ligue 1 og aðeins með þrjú stig eftir fjóra leiki í Meistaradeildinni. Liðið tapaði 9-1 gegn Como í Meistaradeildinni á dögunum.
Dino Toppmoller tók við Lens af Sage í sumar en var rekinn eftir aðeins sex leiki. Því næst tók Yannick Cahuzac við liðinu en búist er við að hann fái sparkið á næstu dögum.