Fotbolti.net
12.11.26 - 12:30
Kári Snorrason

Bjóða á umspilsleikinn gegn Portúgal - Vilja fylla Laugardalsvöll

KSÍ og bakhjarlar bjóða inn á völlinn.

KSÍ og bakhjarlar bjóða inn á völlinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kvennalandslið
Frítt verður á umspilsleik kvennalandsliðsins gegn Portúgal þann 5. desember. KSÍ og bakhjarlar sambandsins bjóða inn á völlinn og segir í tilkynningu KSÍ að markmiðið sé að fylla Laugardalsvöll.

Um er að ræða seinni umspilsleik þjóðanna en sá fyrri fer fram í Portúgal, 1. desember. Sigurlið einvígisins tryggir sér sæti á HM í Brasilíu næsta sumar.
Landsliðshópurinn - Koma þær Íslandi á HM?
TENGT EFNI

Landsliðshópurinn - Koma þær Íslandi á HM?

Almenna boðsmiðaferlið opnar 17. nóvember klukkan 12:00. Boðsmiðar verða sóttir í miðakerfi KSÍ og verða með númeruðum sætum. Hægt verður að sækja um boðsmiða til miðnættis 23. nóvember. Miðum verður í framhaldinu úthlutað af handahófi.

Kvennalandsliðið hefur einu sinni fyllt Laugardalsvöll en það var í 2-0 tapi gegn Þýskalandi árið 2018. Sigur í þeim leik hefði tryggt Íslandi sæti á HM 2019.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.