12.11.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Framlengir við Villa eftir 100. leikinn

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Aston Villa hefur tilkynnt að Ian Maatsen sé búinn að skrifa undir nýjan samning. Villa gefur ekki upp um hversu langur samningurinn er.
Maatsen er 24 ára hollenskur vinstri bakvörður en hann gekk til liðs við félagið frá Chelsea árið 2024.
Hann spilaði sinn 100. leik fyrir Villa í 4-4 jafnteflinu gegn Man Utd. Hann er fastamaður í liðinu en hann meiddist um miðjan september og var frá í mánuð.
Victor Lindelof skrifaði undir nýjan samning til ársins 2028 við Villa í vikunni.