Fotbolti.net
12.11.26 - 10:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá Plovdiv

Óskar ekki áfram hjá ÍBV (Staðfest) - „Tókst því miður ekki að fylgja því eftir"

Verður ekki áfram hjá ÍBV.

Verður ekki áfram hjá ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lítið hefur heyrst af þjálfaramálum í Vestmannaeyjum, ÍBV féll úr Bestu deildinni í síðasta mánuði og verður í Lengjudeildinni á næsta tímabili.

Aleksandar Linta er að óbreyttu þjálfari liðsins. Á liðnu tímabili var Eyjamaðurinn Óskar Elías Zoega Óskarsson Serbanum til aðstoðar, en Óskar er orðinn samningslaus. Hann ætlar ekki að halda áfram í því starfi.

Fótbolti.net sló á þráðinn til Óskars og ræddi við hann um stöðuna. Hann segist ætla að skoða í rólegheitum hvað hann gerir næst.
Sá hreinskilni kallar eftir meiri Eyjastemningu - „Segi hlutina með hagsmuni ÍBV fyrir brjósti"
TENGT EFNI

Sá hreinskilni kallar eftir meiri Eyjastemningu - „Segi hlutina með hagsmuni ÍBV fyrir brjósti"

En hvernig gerir hann upp liðið tímabilið, hvað varð liðinu að falli?

„Það var ýmislegt sem klikkaði hjá okkur í ár. Hópurinn kom seint saman, lykilmenn meiddust og samgöngurnar í vetur gerðu undirbúninginn erfiðari. Við höfðum takmarkaða stjórn á mörgu af þessu, en við hefðum líka getað gert ýmislegt betur sjálfir."

„Við fórum svolítið óslípaðir inn í mótið og það tók okkur nokkra leiki að koma okkur í gang. Svo kom ágætur kafli þar sem mér fannst þetta geta smollið hjá okkur eins og tímabilið á undan. Okkur tókst því miður ekki að fylgja því eftir. Þegar illa gengur eru það oft margir litlir hlutir sem leggjast saman.“


Telurðu að geta hópsins hafi ekki verið nægilega góð?'

„Nei, alls ekki. Við vorum kannski ekki með einn sterkasta hópinn í deildinni, en við hefðum getað fengið meira út úr honum. Meiðsli lykilmanna höfðu áhrif og það sem við hefðum helst getað gert betur var uppsetningin og samsetning hópsins.“

Áttu von á miklum breytingum á leikmannahópnum fyrir næsta tímabil?

„Það verða yfirleitt einhverjar breytingar á leikmannahópnum hjá ÍBV og félagið reynir að halda þeim í lágmarki. Þið vitið hverjir eru samningslausir, en ég get ekki sagt til um hvort fleiri fari eða hvaða leikmenn félagið horfir til.“

Hvað með þjálfarateymið? Verður þú áfram sem aðstoðarþjálfari á næsta tímabili?

„Núna var ég að klára samninginn minn frá því að ég byrjaði með Láka og ég er mjög þakklátur fyrir traustið og tímann sem ég hef fengið síðustu tvö ár með liðinu. Ég hef lært gríðarlega mikið, en ég mun ekki halda áfram með liðinu. Ég var búinn að hugsa um það fyrir fram að taka mér smá pásu eftir tímabilið og sjá svo í rólegheitunum hvað ég geri næst," segir Óskar.
Óskar ekki áfram hjá ÍBV (Staðfest) - „Tókst því miður ekki að fylgja því eftir"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar er 31 árs.

Óskar er 31 árs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var í tvö ár aðstoðarþjálfari liðsins.

Var í tvö ár aðstoðarþjálfari liðsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.